Gagnagrunnur um samfélagsgerð Íslands árið 1703

Í Gagnagrunni um samfélagsgerð Íslands 1703 (skammstafað GUS-1703) eru samtengdar og landfræðilega hnitaðar upplýsingar um Íslendinga og íslenskt samfélag í upphafi 18. aldar: einstaklinga, fjölskyldur, heimili, jarðir og búfé. GUS-1703 er unninn af sjö sagnfræðingum og landfræðingum í rannsóknarverkefninu Undirstöður landbúnaðarsamfélagsins. Fjölskylda og heimilisbúskapur á Íslandi í byrjun 18. aldar í Háskóla Íslands. Gögnin eru fengin úr manntalinu 1703, kvikfjártalinu 1703 og Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Jónssonar Vídalíns 1702–1714. Niðurstöður rannsóknarinnar eru birtar í bókinni Ástand Íslands um 1700. Lífshættir í bændasamfélagi (Sögufélag, 2024).

Vefnum er skipt í fjóra hluta: kortasjá, gagnagrunn, töflur, myndir og kort; um gögnin og rannsóknina. Notendum vefsins ber að virða höfundarrétt og vísa til gagnagrunnsins á viðeigandi hátt. Til vefsins almennt og gagna sem sótt er í hann skal vísa þannig:

GUS-1703. Gagnagrunnur um samfélagsgerð Íslands 1703 (GUS-1703) https://1703.is

Ef notuð eru gögn á síðunni Töflur, myndir og kort skal vísa til heimildar á eftirfarandi hátt:

Guðmundur Jónsson, ritstj. Ástand Íslands um 1700. Lífshættir í bændasamfélagi (Sögufélag: Reykjavík, 2024), [bls.].